Jæja, þá er frumsýningin búin. 4. október. Gekk líka bara svona vel. Mættum þarna kl.19 til að taka okkur til, hár og meikup. Alveg magnað stuð. Við Frikki tókum blackbird í dinnernum, gekk voða vel bara. Síðan var showið sjálft uppúr 22. Magnaður salur og bara alveg hreint yndislegt fólk í salnum, mikið klappað og dansað. Eftir show var auðvitað skálað í freyðivíni og síðan skelltu sér allir á ball með Kusk/Parket eða Kusket, eða Parkus….. Hehe, ýkt góð hljómsveit!! Ég var semsé líka að syngja bakraddir allan tíman með Elvari og Heiðari þegar ég var ekki að syngja mín lög, og ég verð bara að taka að ofan fyrir öllum ballsöngvurum sem syngja 3-4 tíma næstum stanslaust, vá, ég var bara vel búin eftir klukkutíma! Hehe, en þetta venst örugglega.
Allavega, þá er uppselt á allar sýningar og einnig einhverjir biðlistar á allar. Svo eru næstu 4 sýningar, næstu fjóra laugardaga og síðan er það Smyrlabjörg, það verður eflaust stuð eins og í síðustu skipti!
Nú er það bara skólinn og vinnan sem tekur við virku dagana… Það er einnig vel farið að stytta daginn, Hálft dimmt þegar maður vaknar á morgnanna og orðið dimmt aftur um 6 leitið, frekar fúlt svona, en þetta fylgir víst vetrinum. Önnin hálfnuð í skólanum, þannig að þetta fer nú að styttast.
Allavega ætla að enda þetta á að taka það fram að ég datt ekki á hælunum á frumsýningunni, en ég hef nú allavega 4-5 tækifæri í viðbót..
Hérna koma nokkrar myndir af generalprufu á BÍTL og frumsýningarpartýinu (Myndir frá Söndru og Sigga Mar:





